Spilavin 2027

Spilavin er fjögurra daga spilahátíð sem haldin er á Hvolsvelli á hverju ári í kringum sumardaginn fyrsta, og árið 2027 verður hátíðin frá 22.-25. apríl. 

Spilasafnið kemur austur á miðvikudeginum og við erum byrjuð að setja upp um kvöldmatarleytið. Hátíðin byrjar formlega kl 9 á fimmtudagsmorgni en það er ekkert sem segir að þið getið ekki komið ykkur fyrir á hótelinu á miðvikudagskvöldinu og byrjað að spila.

Innifalið í miðaverðinu er:

  • Aðgangur á hátíðina
  • Aðgengi að spilasafninu
  • Gos, sælgæti og snakk
  • Viðburðir (pub quiz o.fl sem verður tilkynnt síðar).

Það sem er ekki innifalið er:

  • Morgunmatur, hádegis- og kvöldmatur
  • Áfengir drykkir
  • Bingóspjöld fyrir bingóið á föstudagskvöldinu. Verð kr. 500 pr. spjald.

Áfengir drykkir eru seldir á barnum og er ekki leyfilegt að koma með eigin áfenga drykki á spilasvæðið. Slíkt ógildir miðann.

Gestir

Á hverju ári höfum við boðið erlendum gestum á hátíðina, til að lífga aðeins upp á stemminguna. Það verður engin breyting á því í ár! Gestirnir verða kynntir í nóvember, en við getum lofað að það eru engar smá kanónur! Tveir spilahönnuðir, einn efnisframleiðandi og amk. eitt borðspilafyrirtæki.

Kaupa miða

Veldu þann dag/þá daga sem þú vilt taka þátt

Miðinn gildir alla fjóra dagana sem hátíðin stendur yfir.

Vinsamlegast athugið að hótelpöntunin er gerð að loknum kaupum á miðum á hátíðina og hótelið er greitt á staðnum, við komu.

Nóg er að gera eina kauppöntun fyrir alla í hópnum. Tölvupóstur er sendur út á hvern og einn með greiðsluupplýsingum (ef fólk greiðir í sitthvoru lagi).

Hótelverðskrá

Herbergi Fæði 1 nótt 2 nætur 3 nætur 4 nætur
Eins manns Eingöngu gisting 16.900 kr. (16.900 kr./mann) 30.420 kr. (30.420 kr./mann) 45.630 kr. (45.630 kr./mann) 59.150 kr. (59.150 kr./mann)
Gisting með fæði 24.900 kr. (24.900 kr./mann) 44.820 kr. (44.820 kr./mann) 67.230 kr. (67.230 kr./mann) 87.150 kr. (87.150 kr./mann)
Tveggja manna Eingöngu gisting 19.900 kr. (9.950 kr./mann) 35.820 kr. (17.910 kr./mann) 53.730 kr. (26.865 kr./mann) 69.650 kr. (34.825 kr./mann)
Gisting með fæði 35.900 kr. (17.950 kr./mann) 64.620 kr. (32.310 kr./mann) 96.930 kr. (48.465 kr./mann) 125.650 kr. (62.825 kr./mann)
Þriggja manna Eingöngu gisting 23.900 kr. (7.967 kr./mann) 43.020 kr. (14.340 kr./mann) 64.530 kr. (21.510 kr./mann) 83.650 kr. (27.883 kr./mann)
Gisting með fæði 47.900 kr. (15.967 kr./mann) 86.220 kr. (28.740 kr./mann) 129.330 kr. (43.110 kr./mann) 167.650 kr. (55.883 kr./mann)
Fjögurra manna Eingöngu gisting 26.900 kr. (6.725 kr./mann) 48.420 kr. (12.105 kr./mann) 72.630 kr. (18.158 kr./mann) 94.150 kr. (23.538 kr./mann)
Gisting með fæði 58.900 kr. (14.725 kr./mann) 106.020 kr. (26.505 kr./mann) 159.030 kr. (39.758 kr./mann) 206.150 kr. (51.538 kr./mann)

Eins manns

1 nótt 2 nætur 3 nætur 4 nætur
Eingöngu gisting 16.900 kr. (16.900 kr./mann) 30.420 kr. (30.420 kr./mann) 45.630 kr. (45.630 kr./mann) 59.150 kr. (59.150 kr./mann)
Gisting með fæði 24.900 kr. (24.900 kr./mann) 44.820 kr. (44.820 kr./mann) 67.230 kr. (67.230 kr./mann) 87.150 kr. (87.150 kr./mann)

Tveggja manna

1 nótt 2 nætur 3 nætur 4 nætur
Eingöngu gisting 19.900 kr. (9.950 kr./mann) 35.820 kr. (17.910 kr./mann) 53.730 kr. (26.865 kr./mann) 69.650 kr. (34.825 kr./mann)
Gisting með fæði 35.900 kr. (17.950 kr./mann) 64.620 kr. (32.310 kr./mann) 96.930 kr. (48.465 kr./mann) 125.650 kr. (62.825 kr./mann)

Þriggja manna

1 nótt 2 nætur 3 nætur 4 nætur
Eingöngu gisting 23.900 kr. (7.967 kr./mann) 43.020 kr. (14.340 kr./mann) 64.530 kr. (21.510 kr./mann) 83.650 kr. (27.883 kr./mann)
Gisting með fæði 47.900 kr. (15.967 kr./mann) 86.220 kr. (28.740 kr./mann) 129.330 kr. (43.110 kr./mann) 167.650 kr. (55.883 kr./mann)

Fjögurra manna

1 nótt 2 nætur 3 nætur 4 nætur
Eingöngu gisting 26.900 kr. (6.725 kr./mann) 48.420 kr. (12.105 kr./mann) 72.630 kr. (18.158 kr./mann) 94.150 kr. (23.538 kr./mann)
Gisting með fæði 58.900 kr. (14.725 kr./mann) 106.020 kr. (26.505 kr./mann) 159.030 kr. (39.758 kr./mann) 206.150 kr. (51.538 kr./mann)

Matur, pr. dag ef keypt á staðnum: 9.500 kr.